Haxi er nemendafélag líffræðinema við Háskóla Íslands og í félaginu eru skráðir um 80 nemendur.
Stjórn Haxa skipa sjö kjarnakonur en þær eru: Nóa Sólrún Guðjónsdóttir formaður, Ásthildur Erlingsdóttir varaformaður, Eva Hauksdóttir gjaldkeri, Aldís Erna Pálsdóttir ritari, Hrafnhildur Ævarsdóttir þriðja árs fulltrúi, Jónína Herdís Ólafsdóttir annars árs fulltrúi og Eyrún Viktorsdóttir fyrsta árs fulltrúi.
1. Hvernig varð nafn nemendafélagsins til og/eða hvað þýðir það?
HAXI er skammstöfun sem stendur fyrir Hagsmunafélag Líffræðinema.
2. Ef þú ættir að líkja lífinu í ykkar deild við sjónvarpsþátt, hver væri sjónvarpsþátturinn?
Á virkum dögum er þetta eins og David Attenborough, um helgar meira eins og Gossip Girl.
3. Hvert er mottó nemendafélagsins?
Þau eru í raun tvö:
a) Alltaf að gera aðeins meira en þörf er á.
b) Sama hvað er sagt við þig, taktu því sem hrósi.
4. Hver væri draumavísindaferðin?
Í Amazon skóginn.
5. Ef félagið ætti lukkudýr, hvað myndi það þá vera?
Fíllinn Nellý sem flýtti sér af stað í frumskóginn.
6. Hver er eftirminnilegasta vísindaferðin sem af er skólaári?
ORF líftækni þar sem allir fengu gefins efni til að losna við hrukkur.
7. Hver er stærsti viðburður ársins hjá félaginu?
Líklega kræklingakvöldið en þá koma allir veiðimenn félagsins með einhverja bráð sem þeir hafa veitt sjálfir og svo fá allir að smakka og hrynja svo í það.
8. Hvar slaka nemarnir í deildinni á?
Bláu sófunum í Öskju, bestu lúrar ævinnar hafa átt sér stað þar.
9. Líffræðinemar eru...
Supercalifragilisticexpialidocious
10. Ef líffræðingar gætu skipt út einu skynfæri fyrir skynfæri annarrar líffveru, hvert myndi það vera?
Losa sig við kulda- og sársaukaskynið og fá í staðinn að geta séð í myrkri líkt og t.d. kattardýr og fá rákina sem ýsan er með svo þeir finni alltaf fyrir því þegar einhver reynir að læðast að þeim. Þá væri hægt að rækta ofur-líffræði-njósnara sem fengju allir vinnu hjá CIA og marga marga peninga.

