Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Orator í nærmynd

Printer-friendly version

Orator, nemendafélag laganema, er elsta nemendafélag Háskóla Íslands, stofnað 1928. Engan bilbug er að finna á Orator þrátt fyrir háan aldur og stendur félagið fyrir öflugu fræðastarfi með málþingum um lögfræðileg efni og líflegu félagslífi, en lögfræðinemar eru rúmlega 700 talsins í upphafi hvers skólaárs, en afföll nema eru mikil á 1. námsári. 

 

Orator er í nánu samstarfi við systurfélög sín á Norðurlöndum og býðst félagsmönnum átta mismunandi fræðslu- og menningarferðir í norræna samstarfinu á hverju skólaári. 

 

Merki Orators er grágæs sem stendur á Grágás, elstu lögbók Íslendinga.  Margar skemmtilegar hefðir hafa skapast í Orator í tímans rás eins og það að ávarpa háæruverðuga grágæs, sem er merki félagsins. 

 

Student.is fékk Sigurð Gústavsson, formann nemendafélagsins, til að svara nokkrum laufléttum spurningum.

 

Hvernig varð nafn Orators til og hvað þýðir það?

Orator er latneskt heiti og merkir ræðumaður en upprunalegur tilgangur félagsins var að þjálfa félagsmenn sína í ræðumennsku.

 

Ef þú ættir að líkja lífinu í deildinni við sjónvarpsþátt, hver væri þá sjónvarpsþátturinn?

Það væri alla vega ekki Ally McBeal eða Boston Leagal, ætli það væri ekki Kiljan?

 

Hvert er mottó Orators?

Sumir fara ljótum sögum

um menn sem taka próf í lögum

og dæma oss sem eina heild

ég auðmjúkur vill undan kvarta

ég þekki að vísu sauði svarta

en engan hér í lagadeild

 

Hver væri draumavísindaferðin?

Heimsókn í lagadeild Harvard.

 

Ef félagið ætti lukkudýr hvað væri það þá?

Lukkudýrið er grágæsin. 

 

Hver er eftirminnilegasta vísindaferðin sem af er ári?

Fræðslu- og menningarferð á réttarsöguslóðir Þingvalla.

 

Hver er stærsti viðburður ársins hjá Orator?

Árshátíðin okkar sem er haldin ár hvert á afmæli Hæstaréttar Íslands, 16. febrúar.

 

Hvar slaka laganemar á í deildinni?

Þeir slaka aldrei á.

 

Orator-nemar eru?

Laganemar eru mögulega, hugsanlega, þó ekki alfarið, hirspuslaust án undantekninga, vel uppalið, kurteist og notalegt fólk ef það væri þá um sannarlega staðreynd að ræða á téðum tímapunkti sem ég myndi kjósa að  gefa upp slíkar upplýsingar eða ekki. 

 

Hver eru metnaðarfyllstu verkefni Orators?

Þau eru útgáfa félagstímaritsins Gríms Geitskós, fræðastarf nemendafélagsins og lögfræðiþjónusta Orators sem er veitt  almenningi að kostnaðarlausu.

Viðburðir

Nemendafélag í nærmynd

Soffía er nemendafélag heimspekinema.  Soffía merkir viska.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...