Háskóli Íslands student.is

Stúdentaráð

Stúdentaráð
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Bæta við færsluPrinter-friendly version

Ritstjóri Stúdentablaðsins 2011-2012

Baldur Ólafsson
Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

Stúdentaráð Háskóla Íslands auglýsir lausa stöðu ritstjóra Stúdentablaðsins starfsárið 2011-2012.

 

 

Starf ritstjóra er tvíþætt:

 

Annars vegar skal ritstjóri hafa yfirumsjón með útgáfu Stúdentablaðsins sem gefið er út 4-6 sinnum á ári, eftir ákvörðun ritstjóra og stjórnar Stúdentaráðs. Ritstjóri vinnur að auglýsingasöfnun og rekstri blaðsins í samstarfi við framkvæmdastjóra Stúdentaráðs. Þá velur ritstjóri í ritstjórn og stýrir störfum hennar. Ritstjóri tekur jafnframt að sér önnur tilfallandi útgáfustörf innan SHÍ ef þess gerist þörf. Hins vegar er ritstjóri ábyrgur fyrir efni heimasíðu stúdentaráðs, student.is (verður studentarad.is). Þessa dagana er unnið að útlits- og áherslubreytingum á síðunni og mun ritstjóri taka þátt í því að móta og viðhalda efni síðunnar yfir starfsárið.

 

Æskilegt er að ritstjóri uppfylli eftirfarandi hæfnisskilyrði:

 

•       Þekking og áhugi á málefnum stúdenta
•       Reynsla af fjölmiðla- og útgáfustörfum
•       Reynsla af grafískri hönnun er kostur

•       Góð almenn tölvukunnátta

•       Þekking á vefumsjón er kostur
•       Gott vald á íslenskri tungu
•       Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
•       Hæfileiki til að vinna með Stúdentaráðsliðum, starfsmönnum skrifstofu SHÍ og öðrum hagsmunaaðilum ráðsins.

 

Ritstjóri Stúdentablaðsins er ráðinn í 50% stöðu frá 10. ágúst 2011 – 10. maí 2012. Upphaf starfstíma getur þó verið sveigjanlegt eftir samkomulagi. Laun fara eftir kjarasamningum VR og SA um skrifstofufólk eftir 3. ár í starfsgrein fyrir 50% starf. Ritstjóri skal hafa fasta viðveru á skrifstofu Stúdentaráðs.

 

 

Nánari upplýsingar um starfið má fá hjá formanni SHÍ í síma 570-0852.

 

Umsókn skal skila skriflega en æskilegt er að umsækjandi geri grein fyrir umsókn sinni, fjalli um sýn sína á Stúdentablaðið og þær hugmyndir sem viðkomandi hefur fyrir útgáfu næsta skólaárs. Ef umsækjandi hefur gegnt fyrri ritstörfum væri æskilegt að láta sýnishorn af þeim fylgja með.
Einnig skal skila ítarlegri ferilskrá. Gögnin skulu vera merkt: „Ritstjóri Stúdentablaðsins 2011-2012“ og þeim skilað til:

 

 

Stúdentaráðs Háskóla Íslands

Háskólatorgi

101 Reykjavík

 

eða á tölvupósti til shi@hi.is.

 

Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí 2011

__________________________________________________________________

 

University Student Council is looking fo an editor for the Student Paper (Stúdentablaðið) for the next school year 2011-2012. 

The responsibility of the editor is twofold: 
On the one hand, the editor oversees the Student Paper published 4-6 times a year, at the discretion of the editor and the Board of the Student Council. The editor works in conjunction with the Executive Director of the Student Council for gathering ads and management of the paper. The editor chooses his/her  editorial team and manages their work. The editor will also undertake other activities like incidental issue within  SHI if necessary. Also, the editor is responsible for the content of the Student Council website, student.is (soon to be studentarad.is). Work is in progress on a new layout for the website and the editor will take part in shaping and maintaining the content of the operating site. 

To be considered for the job as editor the following eligibility criteria is as follows: 

• Knowledge and interest in student affairs 
• Experience in media and publishing jobs 
• Experience with graphic design is an advantage 
• Good Computer skills and general knowledge of website management is helpful
• Good command of the Icelandic language 
• Initiative and have the ability to work independently 
• Ability to work with student teams, office staff and other stakeholders of the SHI Council. 

The Student editor is appointed to a 50% position from August 10th, 2011 – May 10th, 2012. The initial period may however be flexible. Salaries depend on wage and VR SA of office workers after third year in the profession for 50%. The editor has work space at the Student Councils office and is expected to be present when possible. 

For more information about the program, contact the Chairman of SHI at 570-0852. 

Applications must be submitted in writing but it is desirable that applicants explain their applications, focusing on its vision of Stúdentablaðið (Student Paper) and ideas for the person issuing the next academic year. If the applicant has held previous publications would be desirable to have samples of that work. 

One should also submit a detailed CV. The data should be labeled: "Student Paper Editor, 2011-2012," and returned to: 

Office of the Student Council of University of Iceland 
University Center 
101 Reykjavík 

or through e-mail shi@hi.is. 

Application deadline is July 15th, 2011.

share

Viðburðir

Nemendafélag í nærmynd

Torfhildur: „A book commits suicide every time you watch Jersey Shore“.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...