Háskóli Íslands student.is

Um stúdent

Um stúdent
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Um student.is

Printer-friendly version

Student.is er samstarfsverkefni meistaranema í blaða og fréttamennsku við Háskóla Íslands, Stúdentaráðs, Félagsstofnunar stúdenta og markaðs- og samskiptasviðs skólans.

Hugmyndina átti Díana Dögg Víglundsdóttir, nemi í blaða- og fréttamennsku.  Hennar lokaverkefni var að hanna fréttavef sem nemendur í blaða og fréttamennsku sæu um.  Hún lét hins vegar ekki þar við sitja heldur kynnti hugmyndina fyrir verkefnisstjóra námsins og kynningardeild Háskólans  og fleirum. 

 Allir sáu í þessu mikil tækifæri. Annars vegar til að vekja athygli á því fjölmenna samfélagi sem Háskóli Íslands er og hins vegar sem vettvang fyrir verkefni blaða og fréttamennskunema.  

Díana Dögg var ráðin til að þróa hugmynd sína áfram og  hanna vefinn sem vatt sífellt upp á sig. Æ fleiri aðilar innan skólans sáu sér hag í að koma þar að, stúdentaráð, jafnréttisfulltrúi háskólans, alþjóða skiptinemasamtökin AIESEC, Félagsstofnun stúdenta og fleiri .

 Vefurinn varð að nokkurs konar stúdentatorgi, þar sem stúdentar geta fengið upplýsingar um flest sem að skólanum snýr hvort heldur það eru fréttir af því sem þar er að gerast, upplýsingar um matseðilinn í Hámu, hagsmunabaráttuna eða félagslífið. 

 

Stúdent.is er í stöðugri þróun og allar ábendingar um efni hans vel þegnar á efni@hi.is

 


Viðburðir

Nemendafélag í nærmynd

Curator er félag hjúkrunarnema við HÍ. Mottó félagsins er „Have fun or die trying“.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...